Gul viðvörun - suðvestan hvassviðri eða stormur
30.Nóvember'20 | 22:40Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir Suðurland sem tekur í gildi á morgun, 1 desember kl. 12:00 og gildir til 23:30.
Suðvestan hvassviðri eða stormur, 15-23 m/s með hviðum jafnvel yfir 30 m/s. Há sjávarstaða og mikil ölduhæð getur valdið miklum ágangi við ströndina.
Í nýrri textaspá fyrir Suðurland segir að það verði suðaustan 15-23 m/s með rigningu á láglendi, en snjókomu á heiðum fram að miðnætti. Hægari í nótt. Gengur í suðvestan 15-23 á morgun með skúrum eða slydduéljum. Hiti 2 til 6 stig. Suðvestan 13-20 og él annað kvöld með kólnandi veðri.
Spá gerð: 30.11.2020 21:56. Gildir til: 02.12.2020 00:00.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.
Má bjóða þér að auglýsa hér?
23.Júní'22Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.