Landeyjahafnarsiglingar áætlaðar síðdegis og í kvöld
29.Nóvember'20 | 15:03Herjólfur stefnir á siglingar til Landeyjahafnar seinni partinn í dag þar sem aðstæður eiga að fara batnandi.
Brottför frá Vestmanneyjum kl. 17:00, 19:30, 22:00. Brottför frá Landeyjahöfn kl. 18:15, 20:45, 23:15.
Ef gera þarf breytingar á áætlun, þá gefum við það út um leið og það liggur fyrir. Hvað varðar siglingar fyrir morgundaginn 30.nóvember, verður gefin út tilkynning fyrir kl. 06:00 í fyrramálið, segir í tilkynningu frá Herjólfi ohf.
Farþegum er góðfúslega bent á að þegar þetta tímabil gengur í garð þá er alltaf hætta á færslum milli hafna og því ekki æskilegt að skilja bifreiðar eftir í annarri hvorri höfninni, Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn.
Við biðlum einnig til farþega okkar að virða grímuskylduna um borð í ferjunni sem og að huga vel að sóttvörnum, segir í tilkynningunni.
Má bjóða þér að auglýsa hér?
23.Júní'22Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.