Synjað um stöðuleyfi fyrir veitingagám
24.September'20 | 07:15Hallgrímur S. Rögnvaldsson sem á og rekur veitingastaðinn Canton sótti um stöðuleyfi til umhverfis- og skipulagsráðs og var málið tekið fyrir á fundi ráðsins nú í vikunni.
Farið var fram á að staðsetja veitingagám og lagergám á bílastæði við Tangagötu. Fram kemur í umsókninni að umræddur gámur hafi verið staðsettur á stæðinu árin 2012-2016. Breytingin nú var að óskað var eftir að bæta öðrum gám við sem ætlaður var fyrir lager og salerni.
Í niðurstöðu ráðsins segir að ráðið geti ekki orðið við erindinu.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...
Má bjóða þér að auglýsa hér?
15.Janúar'18Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.