Handknattleikur:
Petar Jokanovic áfram hjá ÍBV
30.Júní'20 | 15:10Petar Jokanovic hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við handknattleiksdeild ÍBV. Petar kom til liðs við ÍBV fyrir síðasta tímabil og átti fínasta tímabil.
Hann varði á köflum meistaralega í markinu og átti m.a. stóran þátt í sigri liðsins í bikarúrslitaleiknum gegn Stjörnunni í mars. Í tilkynningu frá ÍBV segir að Petar sé mjög ánægður með umhverfið og fólkið í Vestmannaeyjum og vildi því taka slaginn með félaginu aftur á næsta tímabili.
„Við hjá ÍBV erum ánægð með að hafa gengið frá samningi við Petar og hlökkum til samstarfsins í vetur.” segir enn fremur í tilkynningunni sem birt er á facebook-síðu handknattleiksdeildar ÍBV.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.