Davíð nýr svæðislæknir sóttvarna í Vestmannaeyjum
30.Júní'20 | 13:06Davíð Egilsson yfirlæknir á heilsugæslu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands í Vestmannaeyjum er nýr svæðislæknir sóttvarna í Vestmannaeyjum.
Davíð lærði læknisfræði við Háskóla Íslands og útskrifaðist þaðan 2010 og fékk almennt lækningaleyfi hér á landi 2011. Hann starfaði í kjölfarið á Slysa- og bráðadeild LSH en hélt síðan til Svíþjóðar í sérfræðinám sem hann kláraði árið 2013.
Eftir það stundað hann nám í heimilislækningum við heilsugæsluna í Åhus og sjúkrahúsinu í Kristianstad í Svíþjóð og fékk þar sérfræðileyfi í apríl 2018. Eftir það hélt hann heim til Íslands og er nú eins og fyrr segir yfirlæknir á heilsugæslustöð HSU í Vestmannaeyjum.
Á Suðurlandi eru nú fjórir svæðislæknar sóttvarna sem heyra undir Elínu Freyju Hauksdóttur umdæmislækni sóttvarna á Suðurlandi og yfirlækni á Höfn. Þeir eru auk Davíðs, Björn G. S. Björnsson yfirlæknir í Rangárþingi, Sigurjón Kristinsson yfirlæknir í Laugarási og Ómar Ragnarsson yfirlæknir í Hveragerði og Þorlákshöfn.
Davíð eru færðar hamingjuóskir með nýja titilinn, segir í frétt á vef HSU.
Tags
HSU
Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...