Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja:
Nýju klefarnir teknir í notkun
19.Maí'20 | 09:06Framkvæmdir á nýju klefunum hafa gengið vel og voru þeir opnaðir í morgun. Þó á enn eftir að fínpússa þá örlítið án þess þó að það skerði þjónustu.
Þetta segir Grétar Þór Eyþórsson, forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar Vestmannaeyja á vef Vestmannaeyjabæjar. Hann segir að konurnar þurfi að bíða aðeins með að fá hárblásarana fram á ganginn á meðan við losum okkur alveg við veiruna.
Einnig er verið að ganga frá loftræstingu og mála vesturvegginn í sundlaugarsalnum. Í kringum næstu mánaðarmót ættu svo framkvæmdir á flísalögðum köldum potti að hefjast.
Sundlaugagestir eru beðnir um að huga vel að eigin sóttvörnum og er boðið upp á spritt við hvern inn- og útgang.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...
Má bjóða þér að auglýsa hér?
15.Janúar'18Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.