Fréttatilkynning:
Sýnatökur fyrir COVID-19
5.Maí'20 | 22:31Á laugardaginn (9. maí) verður aftur boðið upp á sýnatökur í Vestmannaeyjum m.t.t. COVID-19 í samstarfi við Íslenska erfðagreiningu.
Um er að ræða rannsókn þar sem tekin eru blóðsýni og háls- og nefkoksstrok. Tilgangurinn er m.a. að skoða hversu margir hafa tekið smit, þ.e.a.s. myndað mótefni gegn veirunni sem veldur COVID-19.
Allir sem vilja geta komið. Hægt er að bóka tíma á vefsíðunni bokun.rannsokn.is (beinn hlekkur: http://bokun.rannsokn.is/q/
Ekki verður tekið við tímapöntunum í gegnum síma HSU.
Sýnatökur fara fram við HSU (heilbrigðisstofnunina) við bílastæði sunnan til (bílastæði á milli Sóla og HSU).
Hjörtur Kristjánsson
Umdæmislæknir sóttvarna
Tags
COVID-19
Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...