Tilkynning um takmarkaðan opnunartíma stofnana Vestmannaeyjabæjar vegna Covid-19
16.Mars'20 | 16:05Í ljósi heimsútbreiðslu COVID-19 og tilmæla almannavarna og sóttvarnalæknis, hefur Vestmannaeyjabær gripið til þeirrar ráðstöfunnar að takmarka opnunartíma stofnana bæjarins. Tilgangurinn er að stuðla að öryggi starfsmanna og lágmarka hættu á að þjónustan rofni.
Fjöldatakmarkanir eru í íþróttahúsi.
Athugið að boðið er upp á vistun leikskólabarna annan hvern dag til þess að mæta skilyrðum samkomubannsins.
Opnunartímar stofnana eru sem hér segir:
Stofnun |
Opnunartímar á starfsstöð |
Grunnskóli Vestmannaeyja |
4 kennslustundir á dag. Nánara skipulag kemur frá skóla. |
Víkin 5 ára deild |
7:45-15:30 (sjá nánari útfærslu frá skóla) |
Kirkjugerði |
7:45-15:30 (sjá nánari útfærslu frá skóla) |
Sóli |
7:45-15:30 (sjá nánari útfærslu frá skóla) |
Frístund |
12-15 í Hamarskóla (sjá nánari útfærslu frá skóla) |
Tónlistarskóli |
Óbreytt starfsemi. Hópatímar falla niður |
Sambýlið |
Engar heimsóknir leyfðar |
Hraunbúðir |
Engar heimsóknir leyfðar |
Heimaey hæfingarstöð |
Engar heimsóknir leyfðar |
Endurvinnslan |
Lokuð tímabundið |
Eldheimar |
13-15 miðvikudaga til sunnudaga |
Sagnheimar |
13-15 alla virka daga |
Bókasafn |
13-15 alla virka daga |
Héraðsskjalasafn |
13-15 alla virka daga |
Bæjarskrifstofur- Bárustíg 15 |
10-12 alla virka daga |
Bæjarskrifstofur- Rauðagerði |
10-12 alla virka daga |
Bæjarskrifstofur- Tæknideild |
10-12 alla virka daga |
Höfnin |
Enginn opnunartími.Vaktsími hafnarvarða 893-0027 |
Þjónustumiðstöðin |
Enginn opnunartími. Símanúmer 488-2500 |
Féló (félagsmiðstöðin) |
Lokað þessa viku vegna flutning og svo endurskoðað |
Íþróttamiðstöðin |
Óbreyttur opnunartími. Breytt starfsemi (útfærsa auglýst) |
Herjólfshöllin |
Takmarkaður aðgangur (16 ára og eldri hafa aðgang) |
Týsheimilið |
Lokað |
|
|
Hægt er að beina erindum í gegnum síma á hefðbundnum opnunartímum (dagvinnutíma) eða með tölvupósti á postur@vestmannaeyjar.is. Þeim tilmælum er beint til fólks að beina sem flestum erindum með þeim hætti og takmarka komur á staðinn. Hægt verður að hringja á hefðbundinn hátt í gegnum skiptiborð, s. 488 2000. Ef ekki næst í starfsmann taka þjónustufulltrúar skilaboð.
Hjá nokkrum stofnunum bæjarins hefur verið ákveðið að skipta upp starfsfólki í ninni hópa (þar sem sumir vinna heima og aðrir á vinnustað) til að minnka líkur á að allir veikist á sama tíma og tryggja að þjónustan rofni ekki.
Fjölmennir fundir og viðburðir á vegum bæjarins eru ekki heimilir.
Ákvörðun um skerta opnunartíma stofnana bæjarins á við meðan samkomubann stjórnvalda er í gildi, en ákvörunin endurskoðaðuð reglulega.
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.