Enn fjölgar í Eyjum
4363 búsettir í sveitarfélaginu í dag
22.Janúar'20 | 19:15Eyjar.net kannar reglulega hvernig íbúaþróunin er í Vestmannaeyjum. Íbúum hafði fækkað þegar staðan var tekin síðastliðið vor en þá var talan komin niður í 4307. Í ágúst sl. voru bæjarbúar 4319. Í október sl. var fjöldinn 4326.
Í dag er íbúatalan í Vestmannaeyjum hins vegar komin í 4363, samkvæmt nýjustu upplýsingum frá Vestmannaeyjabæ. Það er því ljóst að Eyjamenn hafa ekki verið fleiri í 18 ár, eða allt frá árinu 2002 þegar íbúar voru hér 4426.
Flestir voru íbúarnir í Eyjum fyrir gos, en þá bjuggu yfir 5200 manns í sveitarfélaginu. Hér að neðan má sjá íbúaþróun í Vestmannaeyjum á árunum 1998-2019.
Tafla/Hagstofan.

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...
Má bjóða þér að auglýsa hér?
15.Janúar'18Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.