Tæplega 800 ferðir í sjúkraflugi á síðasta ári
10.Janúar'20 | 16:59Framkvæmdastjóri Mýflugs er hlynntur hugmyndum um sjúkraþyrlu á sunnanverðu landinu.
Segir hentugt að gera sjúkraflugið út frá Akureyri
Miðstöð flugsins er á Akureyri. Þar eru tvær flugvélar til taks og ríflega fimm áhafnir. „Það var niðurstaðan á sínum tíma, þegar þetta var skoðað, að besta staðsetningin fyrir sjúkraflugvél væri hér,“ segir Leifur Hallgrímsson, framkvæmdastjóri Mýflugs.
Sammála hugmyndum um sjúkraþyrlu á Suðurlandi
Núverandi fyrirkomulag sjúkraflugs hefur þó verið gagnrýnt, meðal annars í Vestmannaeyjum og á Ísafirði. Sjúkraþyrla á Suðurlandi myndi bæta þar úr og Leifi líst vel á þær hugmyndir. „Ég reikna með því að það myndi fækka svona sirka um helming flugferðunum hjá okkur inn á Vestmannaeyjar við það að þyrla yrði staðsett á Suðvesturhorninu eða á Suðurlandi.“
Mýflug telur sig eiga inni fjármuni hjá ríkinu
Fluginu er sinnt samkvæmt útboði ár hvert þar sem greitt er fyrir ákveðinn fjölda ferða. Þar segir Leifur óuppgert við ríkið. „Þegar þetta var boðið út 2012 þá var gert ráð fyrir 470 flugum. Árið 2016, 2017 og 2018 urðu þau nærri 800.“ Þarna telji Mýflug sig eiga inni talsverða fjármuni hjá ríkinu, en um það sé ágreiningur. „Það þarf að klára þau mál með einhverjum hætti,“ segir hann.
Rúv.is greindi frá, nánar má lesa um málið hér.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...
Má bjóða þér að auglýsa hér?
23.Júní'22Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.