Tryggvi Már Sæmundsson skrifar:
Næst getur töfin kostað mannslíf
9.Janúar'20 | 11:04Eyjar.net greindi frá því í dag að sjúkraflugvél Mýflugs hafi verið 80 mínútum yfir þeim hámarkstíma (105 mín) sem kveðið er á um í samningi Sjúkratrygginga Íslands og Mýflugs um sjúkraflutninga á hæsta forgangsstigi.
Alls voru þetta 185 mínútur sem umræddur sjúklingur þurfti að bíða til að komast upp í vél. Þá átti eftir að flytja hann til Reykjavíkur og koma honum á spítala.
Í viðtali við Leif Hallgrímsson, framkvæmdastjóra Mýflugs hér á Eyjar.net í dag segir hann að það sé læknirinn á sjúkraflugvélinni sem forgangsraðar og ákveður hvort þörf sé á vél númer 2 eða ekki.
Við þetta er ýmislegt að athuga. Fyrir það fyrsta, hvernig á læknir hinu megin á landinu að geta sagt betur til um ástand sjúklings en þeir læknar sem meðhöndla hann. Er sanngjarnt að setja þann lækni í þá stöðu að velja á milli sjúklinga?
Þarna koma upp tvö mjög alvarleg tilfelli sitt hvoru megin á landinu. Jafn alvarleg ef marka má það forgangskerfi sem notast er við. Bæði F1. Öðru var sinnt sem F1 en hitt féll miðað við tímann niður í F3.
Þegar að læknar taka ákvörðun um að flytja þurfi sjúkling á hæsta forgangsstigi hlýtur það að gilda og eiga þeir sem og sjúklingarnir að geta gengið út frá því með vissu að fyrrgreind tímamörk séu virt í slíkum neyðartilfellum. Því eins og segir í forgangi F1, er um er að ræða lífsógn/bráðatilvik sjúklings. Því er ljóst að í þessu tilviki átti að kalla til þyrlu til að sinna öðru þessara verkefna.
Ef það er huglægt mat einhvers annars sem á að gilda framar mati þeirra sem eru að meðhöndla sjúklinginn, þá er eins gott að endurskoða það forgangskerfi sem búið er að koma upp. Heilbrigðisráðherra hlýtur að líta málið alvarlegum augum. Það gera bæjarbúar í Vestmannaeyjum allavega.
Sem betur fer kostaði þetta nýlega dæmi ekki mannslíf, en næst getur slík töf kostað mannslíf!
Tryggvi Már Sæmundsson
Höfundur er ritstjóri Eyjar.net.
Höfundur: Tryggvi Már Sæmundsson
Ritstjóri og útflutningsstjóri. Fæddur í Vestmannaeyjum árið 1976.
Netfang: tryggvi@eyjar.net
Áskorun til þjóðhátíðarnefndar
6.Júlí'21 | 12:51Íbúalýðræði í orði en ekki á borði
30.Janúar'21 | 08:30Vöndum okkur í viðspyrnunni
10.Desember'20 | 10:40Vestmannaeyjar, hvað er það?
4.September'20 | 13:36Sýnum samfélagslega ábyrgð
30.Júlí'20 | 10:35Taktleysi?
9.Júlí'20 | 11:47Er hlutlaus fjölmiðlun draumsýn?
29.Janúar'20 | 07:52Ákvarðanir stjórnar Herjólfs ohf. þurfa að endurspegla vilja eigandans
6.Desember'18 | 11:02Rétt skal vera rétt
21.Nóvember'18 | 11:57Hver var svívirtur?
20.Október'18 | 17:56
Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...