Þrettándamyndin:
Bæjarstjóri kveikti hugmynd
13.Desember'19 | 11:45Sighvatur Jónsson kvikmyndagerðarmaður segist hafa heillast af ritgerð Hrefnu Díönu um þrettándann.
„Ég get eignað Elliða Vignissyni, fyrrverandi bæjarstjóra Vestmannaeyja, þátt í hugmyndinni að myndinni því þegar ég var að ræða við hann um heimildarmyndina Útlendingur heima - uppgjör við eldgos sem við Jóhanna Ýr Jónsdóttir gerðum árið 2013 um Heimaeyjargosið 1973 kom þrettándinn til tals,“ segir Sighvatur.
„Elliði hafði á orði hversu mikil vinna væri við þrettándagleðina og rík saga sem hvort tveggja væri ekki á allra vitorði. Á þeim tíma var ég farinn að horfa til þess að gera heimildarmynd um þjóðhátíð okkar Eyjamanna sem við Skapti Örn Ólafsson hófumst handa við sumarið 2014. Eftir fyrstu upptökur fyrir myndina Fólkið í Dalnum ræddum við Geir Reynisson, vinur minn, saman um mögulega heimildarmynd um þrettándagleðina. Geir hefur oft talað um þrettándann í Eyjum sem risastórt útileikhús, enda koma ríflega 200 manns að hátíðinni. Ég setti mig í samband við Hrefnu Díönu og upptökur hófust á þrettándanum 2015. Á hverju ári ræddum við Geir og Hrefna Díana saman um hvaða efni við gætum bætt við á komandi þrettánda.“
Sagan kemur saman
„Nú fimm árum síðar er ótrúlega gaman að sjá söguna koma saman. Auðvitað hefur maður skoðað efnið eftir hvern einasta þrettánda en sumt ekki síðan. Eftir hvernig þrettánda gerði ég stutta kynningarstiklu með efni frá upptökum þess árs. Með árunum höfum við safnað saman mörgum viðtölum sem varðveita heimildir ásamt því sem sagan hefur orðið til fyrir framan nefið á okkur. Má þar sem dæmi nefna söguleg kynslóðaskipti hjá Grýlu og Leppalúða á síðasta þrettánda. Það er einmitt ríkur þáttur í sögu þrettándans að mörg verkefni ganga í erfðir. Í myndinni gerum við þessu góð skil. Það eru ekki allir sem átta sig á því að Grýla og jólasveinarnir hafa í notið aðstoðar fólks innan sömu fjölskyldna í áratugi,“ segir Sighvatur.
Klippingu myndarinnar er nýlokið og nú stendur eftirvinnsla hennar yfir. „Á meðan við bíðum eftir því að fá myndina úr hljóðblöndun og litvinnslu erum við að fara yfir alla grafík, svo sem skjátexta, nafnaskilti og kreditlista. Við hlökkum mikið til að frumsýna myndina föstudaginn 27. desember í Eyjabíói og í Háskólabíói,“ segir Sighvatur og bendir á að bíómiða má nálgast á söfnunarsíðu myndarinnar hjá Karolina Fund.
Hinn 22. nóvember 1918 voru lög frá Alþingi um kaupstaðarréttindi fyrir Vestmannaeyjar staðfest af konungi. Lögin öðluðust gildi hinn 1. janúar 1919 og er sú dagsetning stofndagur Vestmannaeyjabæjar. Á þeim tíma bjuggu í Vestmannaeyjum ríflega tvö þúsund manns af rösklega 90 þúsund á landinu öllu. Fyrsti fundur bæjarstjórnar Vestmannaeyja fór fram 14. febrúar 1919.
Hér munu birtast greinar og umfjallanir allt afmælisárið um Vestmannaeyjabæ, afmælið og viðburði í tengslum við afmælið.
Herjólfur í 60 ár
12.Desember'19 | 15:09Þrettándinn í máli og myndum
12.Desember'19 | 13:00Saga mikilla framfara í samgöngum á sjó
11.Desember'19 | 11:51Boltinn, brim, björgin og fjaran í ljósopi Inga Tómasar
6.Desember'19 | 17:41Kíkt í einstakt safn Figga á Hól
6.Desember'19 | 11:36Ljósopið – Þar sem kynslóðirnar mætast
5.Desember'19 | 09:27Eyjasundsbikarinn afhentur - myndband
4.Desember'19 | 06:43Guðrún Bergmann fjallaði um heilsuna - myndband
3.Desember'19 | 06:45Tólfta Ljósopið í Einarsstofu á morgun
29.Nóvember'19 | 19:37Kindasögur í Einarsstofu á sunnudaginn
29.Nóvember'19 | 15:40Tags
Þrettándinn
Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.
Má bjóða þér að auglýsa hér?
23.Júní'22Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...