Herjólfur III aftur í áætlun
20.Nóvember'19 | 06:26Vegna smávægilegra samskiptabilunar í stjórnkerfi Herjólfs IV mun Herjólfur III sigla áætlunina í dag 20. nóvember. Vonast er til að lagfæring taki ekki langan tíma. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Herjólfi ohf, en Herjólfur IV sigldi síðari ferð gærdagsins eftir 14 daga stopp vegna rafvæðingarinnar.
Herjólfur III siglir til Þorlákshafnar a.m.k fyrri part dagsins. Brottför frá Vestmannaeryjum kl : 07:00 og frá Þorlákshöfn kl: 10:45.
Þeir farþegar sem áttu pantað gistipláss í Herjólf IV , hafa verið færðir í sambærilega gistingu í Herjólfi III. Hvað varðar seinni ferð dagsins, þá verður greint frá því á facebook-síðu Herjólfs síðar í dag.
Tags
Herjólfur
Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...
Má bjóða þér að auglýsa hér?
23.Júní'22Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.