Hóta dagsektum verði úrbótum ekki sinnt
6.September'19 | 06:03Starfsmenn umhverfis- og framkvæmdasviðs fóru yfir stöðu Smáragötu 34 á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í vikunni og næstu skref í málinu. Mál þetta hefur áður farið fyrir ráðið en það var í maí sl.
Krafa um úrbætur
Þá líkt og nú var krafa bæjaryfirvalda að fá tímasetta framkvæmdaáætlun, að öðrum kosti yrði gripið til þess að leggja á dagsektir til að knýja fram úrbætur.
Sjá einnig: Nágrönnum stafi hætta af húsi í óviðunandi ástandi
Í bókuninni nú ítrekar ráðið áhyggjur sínar af ástandi Smáragötu 34, þar sem kröfum sveitarfélagsins um framkvæmdaáætlun og úrbætur hefur ekki verið sinnt af umráðanda hússins.
Ráðið gerir kröfu um að framkvæmdaáætlun liggi fyrir eigi síðar en 12. september, að öðrum kosti verði gripið til þess að leggja á dagsektir sbr. ákæði gr. 2.9.2 í byggingarreglugerð nr.112/2012 frá þeim degi.

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...