Fór betur en á horfðist
18.Júlí'19 | 22:50Slökkvilið Vestmannaeyja var ræst út rétt eftir klukkan sex í kvöld þegar tilkynning barst um eld í þaki á frystigeymslu Vinnslustöðvarinnar þar sem iðnaðarmenn voru að vinna við frágang á þakklæðningu. Var þetta annað útkall Slökkviliðsins á innan við sólarhring.
Þar var m.a. verið að bræða tjörupappa á þakið sem líklega olli því að eldur náði að læsa sig í klæðninguna á litlu svæði. Þegar slökkviliðið kom á vettvang var sá litli eldur sem í þakinu var slökknaður en til öryggis var þakklæðningin rofin á nærliggjandi hluta og svæðið kælt með vatni og svo var farið með IR-vél(hitamyndavél) yfir svæðið til að tryggja að ekki leyndist meiri hiti í þakinu.
Þarna fór betur en á horfðist og það er aldrei of oft brýnt fyrir mönnum að gæta fyllsta öryggis og fara eftir réttum verklagsreglum þegar logavinna er í gangi, segir í tilkynningu á facebook-síðu Slökkviliðsins.
Má bjóða þér að auglýsa hér?
23.Júní'22Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.