Bólusetning við mislingum að hefjast á Suðurlandi
15.Mars'19 | 12:55Hluti af því bóluefni sem er að berast landsins kemur á heilsugæslur á Suðurlandi í dag og restin kemur á þriðjudag ef áætlanir ganga eftir. Byrjað verður að bólusetja í dag og haldið áfram eftir helgi.
Þeim sem verður boðin bólusetning til að byrja með eru óbólusett börn frá 12 mánaða aldri til 18 ára aldurs (börn/einstaklingar sem verða/urðu 18 ára á þessu ári). Nánari upplýsingar varðandi aldursskiptingu við bólusetningu og aðrar upplýsingar um mislinga má finna á www.landlaeknir.is
Eingöngu er hægt að bóka 12 mánaða til 18 ára börn að svo stöddu. Í næstu viku verður boðið upp á bólusetningu fyrir 18 ára til 49 ára, en nánar verður tilkynnt um það síðar, segir í tilkynningu frá HSU.
Tímapantanir í síma:
Hveragerði: 432 2400
Þorlákshöfn: 432 2440
Selfoss: 432 2000
Laugarás: 432 2770
Hella: 432 2700
Hvolsvöllur: 432 2700
Vík í Mýrdal: 432 2800
Kirkjubæjarklaustur: 432 2880
Vestmannaeyjar: 432 2500
Má bjóða þér að auglýsa hér?
23.Júní'22Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.