Fjölskyldu- og tómstundaráð:
Deilt um leiðir að ráðningu æskulýðs-,tómstunda- og íþróttafulltrúa
13.Nóvember'18 | 13:18Á fundi fjölskyldu- og tómstundaráðs í gær kom fram ósk um umræðu frá fulltrúum Sjálfstæðisflokksins um ráðningu æskulýðs-,tómstunda- og íþróttafulltrúa hjá Vestmannaeyjabæ.
Bókað var um málið af hálfu bæði minni- og meirihlutans.
Fulltrúar D listans lögðu fram eftirfarandi bókun;
"Á sama tíma og fulltrúar Sjálfstæðisflokksins vilja sjá öflugt utanumhald í íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsmálum er mikilvægt að kostnaður vegna þessa sé ekki hrein viðbót við útgjöld bæjarfélagsins, sem þegar eru um 440 milljónir á ári í málaflokknum. Leitast verði við að aukið utanumhald skili sér í hagræðingu í málaflokknum sem aftur skilar sér í markvissara íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi sem rekið er í sátt, samlyndi og í öflugu samstarfi við þau félagsamtök sem eru að vinna nú þegar á þessu sviði.
Einnig verði leitast verði við að nýta þá miklu þekkingu á málaflokknum sem starfsfólk fjölskyldusviðs býr yfir, áður en útgjöld eru aukin. Innan málaflokksins eru nú þegar tvö tengd störf þar sem starfsmenn eru ekki í fullu starfi. Þar sem umrædd staða á einnig að vera hlutastarf telja undirritaðir að í stað þess að ráða nýjan starfsmann sé nærtækara að hækka starfshlutfall viðkomandi starfsmanna og færa þeim aukin verkefni. Í framhaldi af því má skoða þann möguleika að útvista ákveðnum verkefnum til félaga og félagasamtaka."
Fulltrúar H og E listans lögðu fram eftirfarandi bókun:
"Meirihluti fjölskyldu- og tómstundaráðs fagnar því að meirihluti bæjarstjórnar hafi samþykkt 50% stöðu æskulýðs, tómstunda og íþróttafulltrúa. Enda mikil þörf á stöðugildinu eins og fram kom í minnisblaði framkvæmdastjóra sviðsins. Eins og umræðan hefur sýnt og endurspeglast í samfélaginu þá er þörf á ábyrgðaraðila fyrir forvarnir og fræðslu fyrir börn og ungmenni."

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.
Má bjóða þér að auglýsa hér?
23.Júní'22Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...