Umhverfis- og skipulagsráð:
Breyta skipulagi fyrir raðhús
11.September'18 | 08:45Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í gær var tekið fyrir að nýju frestað erindi þar sem Júlíus Hallgrímsson óskar eftir lóðum sunnan við Áshamar 1 þar sem fyrirhugað er að byggja tvö 6-íbúða raðhús.
Fram kemur í bókun ráðsins að búið sé að skipa starfshóp um framtíðarskipulag tjaldsvæða á Þjóðhátíð. Í honum eru Jóna Sigríður Guðmundsdóttir, Dóra Björk Gunnarsdóttir og Páll Scheving ásamt framkvæmdastjóra og skipulagsfulltrúa. Hópurinn hefur hafið störf.
Ráðið tekur jákvætt í erindið og felur skipulagsfulltrúa að hefja vinnu við skipulagslýsingu í samræmi við skipulagslög. Undir þetta rita meirihluti ráðsins.
Fordæmisgefandi fyrir aðra sem hafa verið í sömu stöðu
Margrét Rós Ingólfsdóttir, annar tveggja fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í ráðinu gerði grein fyrir atkvæði sínu og bókaði:
Undirrituð var formaður Umhverfis- og skipulagsráðs á fundum nr. 281 og 284 (sem haldnir voru í vor sl.) þar sem umrætt mál var tekið fyrir og voru þá allir nefndarmenn D-lista og E-lista hlynntir því að halda sig við gildandi skipulag á svæðinu. Fékk fyrirspyrjandi þau svör að beiðnin samræmdist ekki því skipulagi sem í gildi er á svæðinu. Nú hefur meirihlutinn lýst því yfir að vera tilbúinn til þess að breyta skipulaginu til þess að verða að óskum fyrirspyrjanda. Slíkt getur ekki annað en verið fordæmisgefandi fyrir aðra sem hafa verið í sömu stöðu og fengið synjanir á grundvelli þeirra skipulaga sem eru í gildi hér í sveitarfélaginu. Þá finnst mér mikilvægt að hafa í huga að umrædd lóð er í raun eina fjölbýlishúsalóðin sem eftir er á skipulagi í Vestmannaeyjum. Undirrituð er því ekki hlynnt þeim breytingum á skipulagi sem óskað er eftir.
Meirihlutinn undrandi
Við lýsum undrun yfir að fulltrúi D-lista vilji halda sig við eldra skipulag og hafa svæðið óbreytt í stað þess að leyfa byggingu raðhúsa, segir í bókun sem Jóna Sigríður Guðmundsdóttir, Stefán Óskar Jónasson og Jónatan Guðni Jónsson skrifa undir.

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...