Fjölskyldu- og tómstundaráð:
Vilja breyta aldursviðmiðum frístundastyrks
1.Ágúst'18 | 05:02Tillaga að breytingu um aldursviðmið í reglum um frístundastyrk var tekin fyrir á fundi fjölskyldu- og tómstundaráðs í gær. Tillagan gengur út á að aldursviðmið í reglum um frístundastyrk verði breytt og verði frá 2ja ára aldri til 16 ára í stað 6 ára til 16 ára.
Lagt er til að breytingin taki gildi frá og með 1. september á þessu ári. Markmiðið með þessari breytingu er að styrkja fleiri aldurshópa til þátttöku í uppbyggilegu frístundastarfi og auka möguleika til þátttöku óháð efnahag. Því fyrr sem börn byrja að kynnast skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi þeim mun meiri líkur eru á að þau tileinki sér slíka iðju. Þátttaka í skipulögðu íþrótta- og tómstundarstarfi hefur veigamikil forvarnaráhrif.
Fjölskyldu- og tómstundaráð mælir með því að foreldrar hvetji börn sín til að taka þátt í skipulögðu íþrótta- og tómstundarstarfi og jafnframt nýti sér frístundastykinn. Ráðið fól framkvæmdastjóra sviðs að koma með nánari upplýsingar um stöðu mála áður en ráðið tekur endanlega ákvörðun um tillöguna.
Draga í efa hæfi einstakra fundarmanna meirihlutans í málinu
Í bókun minnihlutans í ráðinu segir að í ljósi dræmrar notkunar frístundastyrksins tekur minnihlutinn undir að gera þurfi breytingar á úthlutun frístundastyrkja. Mikilvægt er að breytingarnar séu ekki gerðar breytingnna vegna heldur byggi á lausnum sem skilað geti meiri þátttöku í tómstundastarfi. Í ljósi umræðunnar á fundinum drögum við einnig í efa hæfi einstakra fundarmanna meirihlutans í málinu.
Má bjóða þér að auglýsa hér?
23.Júní'22Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...