Aukaaðalfundur SASS í Eyjum
25.Júní'18 | 05:15Auka-aðalfundur Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga verður haldinn í Vestmannaeyjum á morgun og á miðvikudag. Í síðustu fundargerð stjórnar SASS segir að formaður og framkvæmdastjóri hafi kynnt uppfærð drög að dagskrá aukaaðalfundarins.
Þá segir í fundargerðinni að ljóst sé að ráðherra sveitarstjórnar- og samgöngumála komist ekki og því getur hann ekki ávarpað þingið þann 27. júní nk.
Stjórnin er sammála um að nauðsynlegt sé að fjalla um umhverfis-, skipulags- og atvinnumál og á áhrif þessara þátta á byggðaþróun og að umfjöllunina megi m.a. byggja á íbúakönnun sem gerð var á Suðurlandi nýlega. Framkvæmdastjóra var falið að fá ráðherra til að ávarpa þingið.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.
Má bjóða þér að auglýsa hér?
15.Janúar'18Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.