Handknattleikur:
Sandra spilar með U-20 á HM í Eyjum um helgina
20.Mars'18 | 15:30Um helgina spilar íslenska kvennalandsliðið U-20 ára í undankeppni fyrir HM, riðill Íslands verður leikinn hérna í Vestmannaeyjum um næstu helgi, 23. - 25. mars.
Landsliðsþjálfararnir Stefán Arnarson og Hrafnhildur Ósk Skúladóttir hafa valið Söndru Erlingsdóttur í hópinn sem tekur þátt í þessu verkefni. En til gamans má geta að frænka hennar og fyrrverandi leikmaður ÍBV, Þóra Guðný Arnarsdóttir er einnig í hópnum.
ÍBV óskar þeim innilega til hamingju með valið og viljum við hvetja Eyjamenn til að kíkja í íþróttahúsið og hvetja íslenska liðið til dáða, segir í frétt frá ÍBV-íþróttafélagi.
Tímasetningar leikja:
23. mars
Þýskaland - Litháen kl. 17:00
Makedónía - Ísland kl. 19:00
24. mars
Litháen - Makdeónía kl. 14:00
Ísland - Þýskaland kl. 16:00
25. mars
Makedónía - Ísland kl. 10:30
Ísland - Litháen kl. 12:30

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...
Má bjóða þér að auglýsa hér?
23.Júní'22Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.