Pysjueftirlit Sæheima:
40 pysjur frá einni fjölskyldu í dag
- heildarfjöldinn kominn upp í 2.460 pysjur
5.September'17 | 19:12Dagurinn í dag var aðeins rólegri hjá pysjueftirlitinu en síðustu dagar, en samt sem áður nokkuð fjörugur. Komið var með 344 pysjur í eftirlitið í dag og er því heildarfjöldinn kominn upp í 2.460 pysjur.
Það er ekki nokkur spurning að við munum toppa árið í fyrra í pysjufjölda, en þá var komið með 2.639 pysjur og var það næst mesti fjöldi frá upphafi pysjueftirlitsins.
Enn er mikill fjöldi pysja að fljúga í bæinn og ein fjölskylda kom til okkar með 40 pysjur eftir gærkvöldið, segir í frétt á vefsvæði Sæheima.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.
Má bjóða þér að auglýsa hér?
23.Júní'22Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.