Myndband
Breki VE sjósettur, nýmálaður og glæsilegur
- Kæmi ekki á óvart þótt það tæki allt að tvo mánuði að ljúka öllum verkum, segir skipstjórinn
10.Júní'17 | 08:40Breki VE er kominn á flot að nýju í kínversku skipasmíðastöðinni eftir að hafa verið málaður og auðkenndur með nafni og númeri. Togarinn var sjósettur á miðvikudaginn var, 7. júní.
„Auðvitað er spennandi að fylgjast með þessu á vettvangi. Skipið er glæsilegt, reyndar afburða fallegt!“ segir Magnús Ríkarðsson skipstjóri. Hann er nýkominn heim frá Kína og leynir ekki vaxandi spenningi yfir því að komast af stað heim til Eyja með togarann. Á því verður hins vegar einhver bið.
„Frágangurinn tekur sinn tíma, innansleikjurnar eru drjúgar. Við tökum auðvitað ekki við skipinu fyrr en allt er komið i það horf sem um var samið. Mér kæmi ekki á óvart þótt það tæki allt að tvo mánuði að ljúka öllum verkum.“
Systurskipin Breki og Páll Pálsson ÍS eru álíka langt komin í skipasmíðastöðinni. Þau fylgjast að alla leið þar og svo heim til Íslands þegar þar að kemur, að því er segir í frétt á heimasíðu Vinnslustöðvarinnar - vsv.is. Þar má sjá fleiri myndir af skipinu. Hér að neðan má sjá myndband frá sjósetningu skipsins.
Má bjóða þér að auglýsa hér?
23.Júní'22Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.