Meistaradeildin:
Hvar eru konurnar?
14.Mars'17 | 12:45Sádi-Arabía hefur hingað til ekki verið þekkt fyrir að virða réttindi kvenna nema að litlu leyti. Það þótti því merkilegt þegar kvennaráðstefna var haldin í al-Qassim-héraði. Myndir voru sendar til fjölmiðla og vöktu þær mikla furðu enda ekki einasta kona sjáanleg á myndinni heldur þrettán karlar.
Í frétt BBC kemur fram að konurnar hafi verið í öðru herbergi en fengið að taka þátt í gegnum myndútsendingu.
Samfélagsmiðlar tóku myndunum fagnandi og hefur þeim verið dreift víða frá því fundurinn var haldinn í Qassaim-héraði á laugardag. Er myndunum líkt við mynd sem birt var í janúar af Donald Trump Bandaríkjaforseta skrifa undir áætlun um fóstureyðingarlöggjöf landsins umkringdur körlum.
Á sama tíma var sett á laggirnar stúlknaráð Qassaim og er leiðtogi þess Faisal bin Mishal bin Saud, prins en hann er einnig héraðsstjóri. Hann segist vera afar stoltur af ráðstefnunni sem er sú fyrsta af þessu tagi sem haldin er í konungsríkinu.
Hann segir að í Qassim-héraði sé litið á konur sem systur karlmanna og stjórnendur þess telji að það sé á þeirra ábyrgð að veita konum og stúlkum aukin tækifæri. Formaður ráðsins er eiginkona prinsins, Abir bint Salman, en hún er ekki með á myndinni, segir í frétt BBC.

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...