Suðurkjördæmi:
Sjálfstæðisflokkurinn mælist stærstur
18.Október'16 | 20:09Sjálfstæðisflokkurinn nýtur stuðnings 30,7 prósent aðspurðra og fengi þrjá þingmenn kjörna, en hefur nú fjóra þingmenn í Suðurkjördæmi. Framsóknarflokkurinn mælist með 20,5 prósent fylgi, fengi tvo þingmenn kjörna, en er nú með fjóra, samkvæmt nýrri könnun fréttastofu 365.
Framsókn tapar miklu fylgi, en flokkurinn hlaut 34,4 prósent atkvæða í kosningunum 2013, en Sjálfstæðisflokkurinn 28,3 prósent.
Vinstri græn mælast með 14,1 prósent fylgi, Píratar 13,7 prósent, Samfylking 7,3 prósent og Björt framtíð 5,9 prósent, og fengju flokkarnir allir einn þingmann kjörinn.
Vinstri græn bæta því mikið við sig, en flokkurinn hlaut 5,9 prósent atkvæða í kosningunum 2013. Sömu sögu er að segja af Pírötum sem hlutu 4,7 prósent í síðustu kosningum.
Viðreisn mælist með 4,7 prósent fylgi í kjördæminu og fengi ekki mann kjörinn. Íslenska þjóðfylkingin mælist með 1,5 prósent fylgi í kjördæminu, Dögun 0,9 prósent og Flokkur fólksins 0,8 prósent, en aðrir flokkar mældust ekki.
Rétt er að benda á að uppbótarþingmaður kjördæmisins er ekki reiknaður með í þessum útreikningum. Könnunin byggir á könnunum sem fréttastofa hefur gert á undanförnum vikum.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.
Má bjóða þér að auglýsa hér?
23.Júní'22Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.