Bæjarbúar segja sitt álit
12.Mars'16 | 11:45Eyjar.net hefur nú mælt vilja bæjarbúa í samgöngumálum, auk traust á þeim sem fara með þau mál - tvö ár í röð. Vonandi geta ráðamenn nýtt sér þetta plagg til ákvarðanatöku um næstu skref í málinu - sem hlýtur að þurfa að fara að taka.
Eitt er nú hvíslað um á götum Vestmannaeyjabæjar. Það er krafa bæjarstjórnar um að smíðatími nýrrar ferju skuli nýttur til lagfæringar á Landeyjahöfn. Það hefur nefnilega ekki verið tekið undir það að neinu leiti af hálfu ríkisins og hafa embættismenn (sérfræðingar) frekar dregið úr því og bent á að það þurfi að rannsaka svæðið í fleiri ár áður en nokkuð er hægt að framkvæma.
Bæjarbúar yrðu e.t.v rólegri ef lagfæringar á höfninni stæðu fyrir dyrum - því þeir vita sem er, að til að mynda fjölgar ekki dögunum sem dýpkunarskipin ná að athafna sig við Landeyjahöfn - við það eitt að fá nýja ferju.
Á meðan engin trygging er af hálfu ríkisins um að höfnin skuli löguð verðum við íbúar hér í verri málum í siglingum til Þorlákshafnar. Þess vegna eru 9 af hverjum 10 sammála spurningunni: ,,Hversu sammála eða ósammála ertu því að gerðar verði umbætur á Landeyjahöfn til að auka notkunartíma hennar áður en ný Vestmannaeyjaferja verður smíðuð?"

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.