Höddi Magg var maður leiksins
7.Júní'15 | 10:35Það má segja að Hörður Magnússon hafi stolið senunni í úslitaleik Meistaradeildarinnar í gærkvöldi. Hvert gullkornið á fætur öðru féll og logaði tvitter í allt gærkvöld. Hann kemst því í Meistaradeildina hér á Eyjar.net. En lítum á nokkur gullkorn:
„Það er öruggt að þessi bikar kemur ekki á…“
[Þögn. Fær sér sopa.]
„… silfurfæti.“
[Kyngir.]
„Er Juventus að gefa Barcelona…“
[Þögn. Fær sér líklega Pepsi.]
„… leik sem enginn átti von á að neinn myndi sjá?“
„Lichtsteiner er þreyttasti maður heimsfótboltans.“ Heimsfótboltans. Góð greining. Þreyttari en Blatter.
Og „gamla frúin hefur ekki sungið sitt síðasta.“ Og „líklega myndi aldrei neinn ekki velja hann í ellefu manna lið.“
Með það dottaði ég. Heyrði þó í svefnrofunum: „Þvílíkur leikur sem fótboltinn hefur gefið okkur, heiminum sem á svo miklu betra skilið, heiminum sem hefur samt gefið okkur Pirlo, sem fer í sumar til Kaliforníu til að sleikja tærnar.“
Líklega var mig að dreyma. Og þó. Mjög hugsanlega ekki.
Höddi er ástæðan fyrir því að við horfum á fótbolta. Eða eins og þulurinn sagði:
„Það er bara einn maður. Bara einn maður.“
[Þögn. Fær sér líklega sódavatn.]
„Sem er hann.“
[Þögn. Sofnar.]
Gullkornin tekin saman af herdubreid.is.

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.
Má bjóða þér að auglýsa hér?
15.Janúar'18Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.