FH borgaði 4,5 milljónir fyrir Þórarinn Inga
27.Nóvember'14 | 11:21Þórarinn Ingi Valdimarsson samdi við FH til fjögurra ára á þriðjudaginn. Þórarinn, sem spilað hefur allan sinn feril með ÍBV fyrir utan stutta dvöl hjá Sarpsborg í Noregi, gerði nýjan samning við Eyjamenn í byrjun árs og var samningsbundinn liðinu út næsta tímabil.
Því þurfti FH að kaupa leikmanninn af ÍBV eins og kom fram á heimasíðu FH-inga þegar félagaskiptin voru tilkynnt.
Samkvæmt heimildum Vísis borgaði FH Eyjamönnum 4,5 milljónir króna fyrir Þórarinn Inga sem hefur átt sæti í landsliðshópi Lars Lagerbäcks og Heimis Hallgrímssonar undanfarna mánuði.
Stjórnarmaður félags í Pepsi-deildinni tjáði íþróttadeild enn fremur að umboðsmaður Þórarins Inga hefði boðið honum leikmanninn fyrir sömu upphæð, en hann hafnaði boðinu.
Þórarinn Ingi kom inn í lið ÍBV 17 ára gamall árið 2007 og hefur síðan þá spilað 133 leiki og skorað 20 mörk fyrir Eyjamenn í efstu tveimur deildum Íslandsmótsins.
Hann var á meðal bestu leikmanna deildarinnar 2010, 2011 og 2012 þegar ÍBV barðist um Íslandsmeistaratitilin undir stjórn Heimis Hallgrímssonar, en Þórarinn olli nokkrum vonbrigðum í sumar þegar hann kom heim á miðjutímabili frá Sarpsborg.
Hann spilaði átta leiki í Pepsi-deildinni án þess að skora en safnaði sjö gulum spjöldum og fór tvívegis í leikbann.
Vísir greindi frá.

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...