Vegagerðin tvísaga
30.September'14 | 08:14Fyrir helgi greindum við frá því að nýja Breiðafjarðarferjan væri 88 metrar á lengd. Var vísað í frétt sem birtist á fréttamiðlinum bb.is og var sú frétt unnin eftir upplýsingum frá vegagerðinni.
Nú er svo komið í ljós að ferjan reynist 68 metrar á lengd en ekki 88 metrar líkt og fyrstu upplýsingar vegagerðarinnar kváðu á um. Frétt vegagerðarinnar er þó enn óljós þar sem í undirfyrirsögn er talað um að ferjan sé 88 metrar á lengd en neðst í fréttinni er hún sögð 68 metrar!
Smelltu á myndina til að sjá hana stærri.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...
Má bjóða þér að auglýsa hér?
15.Janúar'18Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.