ÍBV framlengir lánssamning við George Baldock
22.Júní'12 | 08:01ÍBV hefur framlengt lánssamning sinn við George Baldock en hann er í láni hjá félaginu frá MK Dons.
Baldock kom á láni til ÍBV í byrjun maí og átti upphaflega að vera hér á landi í mánuð. Eyjamenn hafa nú náð samkomulagi um að Baldock muni leika með liðinu þar til 8. ágúst.
Það þýðir að þessi 19 ára gamli leikmaður nær sex leikjum til viðbótar í Pepsi-deildinni sem og leikjum í Evrópudeildinni og Borgunarbikarnum.
Baldock hefur leikið sjö leiki með ÍBV í Pepsi-deildinni í sumar en hann skoraði í 3-1 sigrinum á Grindavík í gær. Baldock hefur aðallega leikið á miðjunni en í gær var hann í stöðu hægri bakvarðar þar sem Arnór Eyvar Ólafsson var veikur.
ÍBV hefur unnið síðustu þrjá leiki í Pepsi-deildinni en liðið hefur verið að endurheimta menn úr meiðslum.
Fyrirliðinn Andri Ólafsson er þó ennþá frá keppni vegna þrálátra nárameiðsla og óvíst er hveæar hann verður klár í slaginn.
Má bjóða þér að auglýsa hér?
23.Júní'22Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.