Fjölskylduvænt samfélag? - framhald
23.Ágúst'07 | 21:51Hins vegar halda bæjaryfirvöld í Eyjum áfram að valda mér vonbrigðum í sínu þjónustuhlutverki. Þrátt fyrir augljósan sparnað í rekstri leikskólanna með sameiningu tveggja skóla undir nýjan Sóla hækka leikskólagjöld. Ekki þarf bærinn að hafa áhyggjur af byggingakostnaðinum, það var Fasteign hf. sem byggði. En engar skýringar liggja fyrir og á meðan dregst bærin aftur úr í baráttunni um fjölskyldufólk.
Svo kom að Grunnskóla Vestmannaeyja. Ákveðið hefur verið að samtvinna rekstur skóladagheimilisins og Athvarfsins. Verður börnunum komið fyrir upp í Þórsheimili. Mun þetta reynast vel? Athvarfið er eins og nafnið gefur til kynna athvarf fyrir börn frá 6-12 ára aldurs. Þetta eru börn sem eiga félagslega erfitt. Þarna er verið að reyna að bæta andlega og líkamlega líðan þeirra. Þetta er athvarf - frá hinu daglega. Og nú á að setja börnin sem þau eru með allan daginn í skólanum með þeim í "athvarfið" Hvernig fer það? Í þokkabót hækka dagvistunargjöldin...
Jæja, nóg með það. Aðalatriði óánægju minnar snýr af þeirri bráðabirgðarlausn sem kynnt var á síðasta ári og snýr að mati barnanna. Sú bráðabirgðarlausn virðist nú orðin af langtímalausn. Það er með öllu hundsuð tilmæli Manneldisráðs um hollustu í skólum landsins. Börnunum er gefið jógúrt og brauð og rukkað fyrir það 40 þúsund krónur á barn. Því var lofað á síðasta ári að úr þessu yrði bætt, fyrst fyrir jól og svo fyrir næsta skólaár. Nú er ljóst að ekkert verður gert, nema að starfsfólkið í skólunum smyr ofan í börnin í staðinn fyrir að kaupa þetta út. Gott ef það verður ekki kakósúpa einu sinni í viku.
Svo þegar ég hef gagnrýnt þetta, þá hefur ein ástæðan sem dregin hefur verið fram að ekki sé hægt að bjóða upp á neitt betra þar sem svo fáir nýti sér þjónustuna. Er það ekki svipað og kokkurinn sem var búinn að vera með sama matseðilinn í fimmtán ár myndi segja: "Það tekur því ekki að skipta um, það kemur hvort sem er aldrei neinn hingað"
Eins og ég hef verið hrifinn af frammistöðu Elliða og félaga í málefnum sem snúa að ímynd Vestmannaeyja út á við og í baráttunni í samgöngumálum þá hafa þeir alveg brugðist í félagsmálum. Það vantar mikið upp á. Við höfum séð fram á fækkun í bænum enn eitt árið og í staðinn fyrir að henda fram einhverju jákvæðu eru gjöldin hækkuð.
Í bæjarfélagi sem hefur útsvarið í botni.
http://svenko.blog.is/blog/svenko/
Hefurðu skoðun á málefninu endilega segðu þína skoðun á www.eyjar.net/spjall

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...
Má bjóða þér að auglýsa hér?
23.Júní'22Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.