Mikið hlegið á sælkerafundi Kiwanis

Í gærkvöldi var hinn árlegi sælkerafundur Helgafells haldinn. Á þessum fundi sjá kokkar klúbbsins um matseldina en allt hráefni kemur úr hafinu hér við Eyjar.

Félagar bjóða með sér gestum og voru 130 manns mættir í Kiwanishúsið í gær. Forseti Tómas Sveinsson setti fundinn og kallaði síðan Kristleif Guðmundsson fram til að kynna matseðilinn, en hann var fjölbreyttur og samanstóð af 13 fiskréttum ásamt öllu meðlæti sem tilheyrir.

Að lokinni kynningu bauð forseti fundarmönnum að gjöra svo vel og ganga í hlaðborðið. Að loknu borðhaldi var klappað fyrir kokkum kvöldsins og síðan aðalgestur kvöldsins boðaður til leiks. Það var engin annar en stórleikarinn Örn Árnason. Fór kappinn hreinlega á kostum. Gítarinn var auðvitað með í för og fékk hann menn til að syngja með sér ásamt að segja góðar sögur og brandara. Mikið fjör var í salnum og fór svo að kappinn var klappaður upp. Í lokinn afhenti Tómas forseti Erni bókargjöf frá klúbbfélögum fyrir frábæra skemmtun.

Fleiri myndir frá fundinum má sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

Vinsælast

Vinsælast