Krónan þakkar fyrir sig með afslætti
21.Janúar'22 | 15:01Krónan býður viðskiptavinum sínum upp á 5 prósent afslátt af öllum vörum í verslunum sínum á morgun, laugardaginn 22. janúar.
Tilefnið er að fimmta árið í röð eru viðskiptavinir Krónunnar þeir ánægðustu á matvörumarkaði, samkvæmt niðurstöðum Íslensku ánægjuvogarinnar sem kynntar voru fyrr í dag.
Krónan hlaut hæstu einkunn meðal verslana á matvörumarkaði með marktækum mun eða 73,4 stig af 100 mögulegum og er þetta í annað sinn sem Krónan þakkar viðskiptavinum sínum með þessum hætti.
„Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar eru dýrmæt viðurkenning og mesta hvatning sem við getum fengið - ekki síst til okkar einstaka starfsfólks sem stendur vaktina alla daga í verslunum Krónunnar um land allt - sama hvað dynur á. Sem þakklætisvott höfum við ákveðið, líkt og í fyrra, að gefa öllum viðskiptavinum okkar „fimmu“ í formi 5 prósent afsláttar á morgun, laugardaginn 22. janúar, og þannig þakka kærlega fyrir okkur,” segir Ásta Sigríður Fjeldsted, framkvæmdastjóri Krónunnar.
Afslátturinn verður því í boði í verslun Krónunnar í Vestmannaeyjum, laugardaginn 22. janúar.
Íslenska ánægjuvogin er í eigu Stjórnvísi og er framkvæmd af Prósent. Markmið verkefnisins er að láta fyrirtækjum í té mælingar á ánægju viðskiptavina en einnig öðrum þáttum sem hafa áhrif á hana, s.s. ímynd, mat á gæðum og tryggð viðskiptavina, segir í tilkynningu frá Krónunni.
Tags
KrónanMá bjóða þér að auglýsa hér?
15.Janúar'18Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...