Auglýsa lóðir á athafnasvæði við flugvöll
5.Nóvember'21 | 07:15Vestmannaeyjabær hefur auglýst lóðir lausar til umsóknar á athafnasvæðinu við flugvöllinn. Um er að ræða 11 lóðir fyrir létta athafnastarfsemi í norðurhluta athafnasvæðis við flugvöll.
Fram kemur í auglýsingunni að lóðarstæðir séu á bilinu 435-1014 m2 og byggingamagn á bilinu 240-896 m2. Vakin er athygli á að lóðunum fylgir kvöð um frágang lóðamarka, stærð og afmörkun geymslusvæða og lýsingu.
Fram kemur í auglýsingunni að lóðirnar verði afhentar í núverandi ásigkomulagi og að gatnagerð mun fara fram samhliða uppbyggingu á lóðum. Áætlað er að hægt verði að hefja framkvæmdir í júlí 2022.
Umsóknarfrestur er til og með 1. desember næstkomandi. Hér má finna nánari upplýsingar um lóðirnar.

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.
Má bjóða þér að auglýsa hér?
23.Júní'22Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...