Hanna áfram með ÍBV
15.Október'21 | 12:40Hanna Kallmaier mun leika með ÍBV í Pepsi Max-deild kvenna á næstu leiktíð en hún hefur skrifað undir eins árs framlengingu á samningi sínum við félagið.
Hönnu þekkja flestir í Vestmannaeyjum en hún hefur verið lykilleikmaður í liði ÍBV síðustu tvö leiktímabil, segir í frétt á heimasíðu ÍBV-íþróttafélags.
Hanna sem er 27 ára hefur ekki misst af einum einasta leik á þessum tveimur tímabilum og var fyrirliði liðsins á nýafstaðinni leiktíð. Hún lék átján leiki í Pepsi Max deildinni í sumar og skoraði tvö mörk, gegn Þór/KA og Breiðabliki.
Hanna var valin leikmaður tímabilsins í fyrra en hún er mikil fyrirmynd fyrir yngri leikmenn félagsins þar sem dugnaður og vinnusemi hennar inni á vellinum skína í gegn í hverjum leik.

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.
Má bjóða þér að auglýsa hér?
23.Júní'22Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...