Leggja til hærri frístundastyrk
8.Október'21 | 14:19Vestmannaeyjabær styrkir tómstundaiðkun allra barna á aldrinum 2 - 18 ára. Á fundi fjölskyldu- og tómstundaráðs í gær var frístundastyrkurinn til umræðu.
Í fundargerðinni kemur fram að markmið og tilgangur frístundastyrksins sé;
- a) styrkja börn á umræddum aldri til þátttöku í uppbyggilegu frístundastarfi og auka möguleika til þáttttöku óháð efnahag,
- b) ýta undir aukna hreyfingu og félagsþátttöku barna,
- c) vinna gegn óæskilegu brottfalli í eldri aldurshópi iðkenda og
- d) auka virkni í frístundatíma barna.
Nýting á styrknum aukist á milli ára
Nýtingin á styrknum hefur verið að aukast milli ára. Árið 2020 var hlutfallið miðað við fjölda barna í umræddum aldurshópum 58,5% sem nýttu styrkinn að fullu en það sem af er ársins er hlutfallið orðið 62,4%. Stærsti hluti styrkjarins fer í að niðurgreiða félagsgjöld hjá ÍBV-íþróttafélagi (rúmur helmingur) og Fimleikafélagsins Ránar (um þriðjungur).
Frístundastyrkur er einn liður í því að gera Vestmannaeyjar að barnvænu samfélagi. Umsóknarferli styrksins hefur verið einfaldað eftir að hægt var að merkja við nýtingu á styrknum um leið og greitt er fyrir æfingagjöld barna í íþrótta- og tómstundastarfi.
Að styrkurinn hækki um 15.000,-
Í afgreiðslu ráðsins segir að það sé ánægjulegt að fleiri séu að nýta sér styrkinn. Með komu frístundarstyrksins hafa börn tækifæri á fjölbreyttara íþrótta- og tómstundastarfi. Þátttaka í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi getur haft veigamikil forvarnaráhrif.
Meirihluti E- og H- listans leggja til að gert verði ráð fyrir því í gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2022 að styrkurinn hækki um 15.000 kr og verði því 50.000 kr. á barn. Mun sú hækkun taka gildi 1. janúar 2022 og felur framkvæmdastjóra að fylgja málinu eftir.
Helga Jóhanna Harðardóttir, Hrefna Jónsdóttir og Hafdís Ásþórsdóttir, fulltrúar E og H lista samþykktu umrædda tillögu en Gísli Stefánsson og Esther Bergsdóttir, fulltrúar D lista sátu hjá.

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.
Má bjóða þér að auglýsa hér?
23.Júní'22Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...