Ásmundur Friðriksson skrifar:
Orkan og tækifæri komandi kynslóða
25.Ágúst'21 | 10:28Ekkert stjórnmálaafl á lengri sögu í náttúruvernd en Sjálfstæðisflokkurinn. Það er óumdeilt.
Rafvæðing þéttbýlis, hitaveita í stað kolakyndingar, uppbygging flutningskerfa raforku eru allt verkefni sem lutu stjórn eða voru ákveðin af Sjálfstæðismönnum í ríkisstjórn og sveitarstjórnum. Á þeirri löngu vegferð leit Sjálfstæðisflokkurinn aldrei til baka og enn má setja stefnuna í eitt orð: ÁFRAM!
Ísland til fyrirmyndar
Engin verkefni í umhverfismálum hafa sett Ísland framar í loftslagsmálum en sjálfbær orkunotkun Íslendinga. Frá árinu 1990 hefur hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa verið í kringum 85% en stefna Evrópusambandsins er að hlutfall endurnýjanlegrar orku í sambandinu, sem er 30% hafi aukist um 5% árið 2050. Ísland er í öðru sæti þegar kemur að fjölda rafbíla miðað við höfðatölu. Þar er keppt við Evrópuþjóðir sem hlaða rafbíla með raforku sem framleidd er úr kolaorku. Fiskiskipafloti Íslendinga hefur farið á undan með góðu fordæmi og minnkað jarðefnaeldsneytisnotkun frá árinu 2005 um 40% miðað við útflutt verðmæti. Ef aðrar þjóðir í heiminum væru á sama stað og við Íslendingar í losun kolefnis væri engin umræða um loftslagsmál í heiminum. Við erum til fyrirmyndar en ætlum að gera betur.
Grænt atvinnulíf fyrir unga fólkið
Ábyrgð okkar í loftslagsmálum er að taka þátt með öðrum þjóðum í minni losun kolefnis. Að sama skapi er það mikilvægt framlag okkar til loftslagsmála í heiminum að nýta endurnýjanlega óbeislaða orku sem við höfum yfir að ráða. Í því felst ekki alhæfing að það eigi að virkja allt sem virkja má. Í þessum atriðum skiptir framlag Íslands miklu máli, þótt árangur þjóða heimsins velti ekki á framlagi Íslands. Atvinnutækifæri framtíðarinnar eiga að skapa fjölbreytt, vel launuð störf við framleiðslu í grænu atvinnulífi, eins og vetnisframleiðslu sem þarf mikla orku og þekkingu. Lífsgæði unga fólksins okkar byggja á forystu Íslands í umhverfisvænni atvinnustarfsemi, hreinleika landsins, gjöfulum fiskimiðum og heilbrigðum landbúnaði.
Sköpum framtíð
Allt tal um að eina hlutverk Íslendinga sé að leggja okkar af mörkum til minni losunar er rangt. Hlutverk okkar er ekki síður mikilvægt í því að nýta endurnýjanlega orkugjafa til að skapa framtíð fyrir unga fólkið í landinu með fjölbreyttri grænni atvinnustarfsemi og fjölbreyttum störfum.
Ásmundur Friðriksson, alþingismaður
Höfundur: Ásmundur Friðriksson.
F. í Reykjavík 21. jan. 1956. For.: Friðrik Ásmundsson (f. 26. nóv. 1934) skipstjóri og skólastjóri og Valgerður Erla Óskarsdóttir (f. 24. maí 1937). M. Sigríður Magnúsdóttir (f. 26. jan. 1958) matráður. For.: Magnús G. Jensson og Kristín Guðríður Höbbý Sveinbjörnsdóttir. Börn: Ása Hrönn (1982), Erla (1984), Magnús Karl (1991). Sonur Ásmundar og Sigurlaugar Sigurpálsdóttur: Friðrik Elís (1975). Stjúpdóttir, dóttir Sigríðar: María Höbbý Sæmundsdóttir (1977).
Gagnfræðapróf Skógaskóla 1973.
Stundaði netagerð og sjómennsku 1970-1972. Vann við hreinsun Heimaeyjar sumarið 1973. Verkstjóri hjá Viðlagasjóði við hreinsun og endurreisn og uppgræðslu Heimaeyjar 1974-1978. Framleiðslu- og yfirverkstjóri hjá Vinnslustöð Vestmannaeyja 1978-1986. Sjálfstætt starfandi blaðamaður 1980-2003. Framkvæmdastjóri Samkomuhúss Vestmannaeyja 1986. Rak fiskvinnslufyrirtækið Kútmagakot ehf. 1988-2003. Framkvæmdastjóri Knattspyrnudeildar Keflavíkur 2004. Verkefnastjóri Ljósanætur 2006. Verkefnastjóri í atvinnu- og menningarmálum hjá Reykjanesbæ 2008. Bæjarstjóri Sveitarfélagsins Garðs 2009-2012.
Í þjóðhátíðarnefndum Vestmannaeyja 1974-1996. Formaður handknattleiksdeildar Þórs 1974-1978. Formaður Eyverja, félags ungra sjálfstæðismanna, 1981-1984. Í stjórn SUS 1983-1987. Í flokksráði Sjálfstæðisflokksins og í stjórn fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Eyjum 1982-1986.Formaður íþrótta- og tómstundaráðs Vestmannaeyja 1982-1986. Formaður ÍBV 1994-1999. Formaður knattspyrnudeildar ÍBV 1999-2002. Stofnandi og formaður hollvinasamtaka Heilsustofnunar Náttúrulækningafélags Íslands í Hveragerði, NLFÍ, 2005-2011. Í stjórn Félags myndlistarmanna í Reykjanesbæ 2007-2008. Stofnandi Lista- og menningarfélagsins í Garði 2009. Stjórnandi listaverkefnisins Ferskir vindar í Garði 2010. Formaður Sjálfstæðisfélagsins í Garði frá 2012.
Alþm. Suðurk. síðan 2013 (Sjálfstæðisflokkur).
Atvinnuveganefnd 2013-, velferðarnefnd 2013-.
Ritstjóri: Fylkir, málgagn sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum (1986-1988).
Heimsmet í eymd
1.September'21 | 09:31Minning: Bragi Júlíusson
1.Júlí'21 | 06:56Á staðnum með fólkinu
24.Maí'21 | 22:19Gerum flott prófkjör!
4.Maí'21 | 14:22Geldingadalur tækifæri nýrra starfa á Suðurnesjum
1.Apríl'21 | 10:03Minning: Þórður Magnússon
18.Mars'21 | 07:30Minning: Ingimar Ágúst Guðmarsson
16.Janúar'21 | 11:51Minning: Páll Árnason
15.Janúar'21 | 10:15Á að loka framtíðina inni?
15.Desember'20 | 07:45Kjánahrollur
11.Nóvember'20 | 09:15Má bjóða þér að auglýsa hér?
15.Janúar'18Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...