Ráðið hefur verið í stöðu verkefnastjóra í öldrunarþjónustu
8.Júní'21 | 16:39Vestmannaeyjabær auglýsti stöðu verkefnastjóra í öldrunarþjónustu lausa til umsóknar í maí sl.
Verkefnastjóri í öldrunarþjónustu vinnur með þróun, samhæfingu, eftirlit og sérhæfingu í málaflokki öldrunarmála í samráði við yfirmann og í samræmi við stefnumótun sveitarfélagsins, leiðarljós og markmið fjölskyldu- og fræðslusviðs.
Samtals sóttu fjórir umsækjendur um stöðu verkefnastjóra í öldrunarþjónustu hjá fjölskyldu- og fræðslusviði. Umsóknir voru metnar út frá þeim þáttum sem fram komu í auglýsingu og vóg menntum, starfsreynsla, áhugi og þekking á öldrunarþjónustu þar mest. Allir umsækjendur voru kallaðir í viðtal. Framkvæmdastjóri sviðs fór yfir umsóknir og sá um viðtölin, segir í frétt á vefsíðu Vestmannaeyjabæjar.
Við mat á umsækjendum kom Thelma Rós Tómasdóttir með hæsta vægi. Vó þar mest menntun hennar og starfsreynsla en Thelma sem er með BS í hjúkrunarfræði er að auki með diplómanám á meistarastigi í öldrunar- og heimahjúkrun auk viðbótar námskeiða í öldrunarráðgjöf og heilabilun. Thelma hefur starfað við þjónustu við aldraða frá 2014 og starfar í dag hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) Vestmannaeyjum bæði á heilsugæslu og í heimahjúkrun. Hefur hún reynslu af utanumhaldi og skipulagi heimahjúkrunar og þverfaglegu starfi við önnur þjónustustig aldraðra og við aðstandendur.
Vestmannaeyjabær býður Thelmu Rós velkomna til starfa, segir í fréttinni.
Tags
VestmannaeyjabærMá bjóða þér að auglýsa hér?
23.Júní'22Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...