42,5% fullbólusettir í Eyjum
Bólusetningarfréttir vikan 31/5 – 4/6
31.Maí'21 | 10:30Nú er verið að yfirfara lista á HSU og boða fólk aftur sem hefur ekki mætt í boðaða bólusetningu. Allir eldri en 50 ára ættu að hafa fengið boð í bólusetningu. Þeir sem hafa ekki fengið boð mega endilega hafa samband við HSU og láta vita af sér.
Á vef HSU er óskað vinsamlega eftir að forsvarsmenn fyrirtækja með nýbúa í vinnu, forvitnist um það hjá sínu fólki hvort þau hafi fengið boð og láti vita ef svo er ekki. Ef HSU er ekki með skráð símanúmer á fólk, er ekki hægt að boða þau.
Best er að senda línu á hsu@hsu.is
Bólusetja með Pfizer og Janssen næstu vikurnar
Þeir sem hafa afþakkað bólusetningu áður, verða boðaðir aftur. Verið er að bólusetja með Pfizer og Janssen næstu vikur. Astra Zeneca er eingöngu notað í seinni skammt þeirra sem fengu það áður.
Nú hefst bólusetningu árganganna eftir handahófskenndri röð. Það er gert til að fá betra hjarðónæmi í samfélaginu þar sem flestir umgangast mest fólk á svipuðum aldri og það sjálft. Þetta er gert eftir leiðbeiningum Embættis Sóttvarnalæknis. Þessi leið er farin á landsvísu, segir í frétt á vef HSU.
Allir árgangar sem eftir eru, voru settir í pott og svo dregið. Niðurstaðan er eftirfarandi:
Handahófskenndur forgangslisti |
||||
1 |
|
2 |
|
|
Árgangur |
Kyn |
Árgangur |
Kyn |
|
1979 |
kvk |
2000 |
kk |
|
1997 |
kvk |
2004 |
kk |
|
1999 |
kvk |
1979 |
kk |
|
1989 |
kvk |
1990 |
kvk |
|
2005 |
kvk |
1995 |
kvk |
|
1999 |
kk |
1980 |
kvk |
|
1988 |
kk |
1995 |
kk |
|
1988 |
kvk |
1984 |
kvk |
|
1985 |
kk |
2001 |
kk |
|
1982 |
kk |
1982 |
kvk |
|
2000 |
kvk |
1993 |
kk |
|
1993 |
kvk |
1991 |
kk |
|
1989 |
kk |
2002 |
kvk |
|
1998 |
kk |
1985 |
kvk |
|
1996 |
kvk |
1983 |
kvk |
|
1978 |
kk |
1992 |
kvk |
|
2001 |
kvk |
1994 |
kk |
|
1996 |
kk |
1986 |
kvk |
|
1994 |
kvk |
1984 |
kk |
|
1981 |
kvk |
1997 |
kk |
|
1980 |
kk |
1986 |
kk |
|
1998 |
kvk |
1987 |
kvk |
|
1983 |
kk |
2005 |
kk |
|
1987 |
kk |
1990 |
kk |
|
2004 |
kvk |
2002 |
kk |
|
2003 |
kk |
1978 |
kvk |
|
2003 |
kvk |
1992 |
kk |
|
1991 |
kvk |
1981 |
kk |
Gangur í bólusetningum á Suðurlandi
Tölur eftir bólusetningar í viku 21.
|
Árnes- og Rangárvallasýsla |
Vestmannaeyjar |
Höfn í Hornafirði |
Kirkjubæjarklaustur |
Vík í Mýrdal |
Fólksfjöldi 16-109 ára |
18509 |
3549 |
1991 |
531 |
658 |
|
|
||||
Fullbólusettir |
44,8 % |
42,5 % |
38,6 % |
49,2 % |
52,7 % |
Hálfbólusettir |
29,6 % |
11,9 % |
10,5 % |
4,0 % |
1,1 % |
Jafnframt segir í fréttinni að reynt verði eftir fremsta megni að deila úthlutuðu bóluefni eins jafnt og hægt er milli bólusetningarstaða hjá HSU. Þegar upp koma skekkjur eru þær leiðréttar vikuna á eftir. Bóluefnið kemur til HSU einu sinni í viku, á þriðjudögum.

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.
Má bjóða þér að auglýsa hér?
23.Júní'22Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.