Eftir Alfreð Alfreðsson
Göngin Göngin
7.Maí'21 | 16:27Það gladdi hjarta mitt að bæjarstjórn var einhuga um það á síðasta fundi að skora á samgönguráðherra og þingmenn kjördæmisins að kostir gangna milli lands og eyja yrðu kannaðir.
Jarðgöng milli lands og eyja yrðu ekki bara hin endanlega lausn við samgönguvanda Vestmannaeyinga. Lagnir á borð við vatn og rafmagn eru stórmál því þær þarf að leggja þær undir sjó með tilheyrandi kostnaði. Jarðgöng bjóða nágrönnum okkar á Suðurlandi nálægð við góðan framhaldsskóla og heilsugæslu sem einu sinni var í topp klassa svo ekki sé talað um nýju augnstofuna sem framsýnir Lionsmenn börðust fyrir og opnar á næstunni og mun í framtíðinni auðvitað þjóna augum allra sunnlendinga, öllum til heilla. Þegar svo stórskipahöfnin norðan Eiðis verður vígð verða fyrirtæki á Suðurlandi komin með hafnaraðstöðu.
Fiskeldi í nágrenni Hvolsvallar með tilheyrandi atvinnusköpun verður raunverulegur möguleiki. Þegar U2 halda stórtónleika sína á sviðinu í Herjólfsdal munu samgöngur ekki stoppa tónleikana. Hugsanlega vill Bono fljúga en hvað með það. Nýtt sveitarfélag norðan eyja mun blómstra og fólkinu fjölga.
Þetta er ein af mörgum ástæðum þess að Vestmannaeyingar og sveitarfélögin Ásahreppur, Rangárþing ytra, Rangárþing eystra, Mýrdalshreppur og Skaftárhreppur sem á næsta ári munu væntanlega heita sveitarfélagið Suðurland eiga að leggjast á árar með Vestmannaeyingum og krefjast þess að hafist verði handa um göng nú þegar.
Góðir Vestmannaeyingar, gerum eins og Akureyringar gerðu forðum daga þegar korter var í kosningar, fáum þingmenn kjördæmisins til að gefa út yfirlýsingar um hvort þeir séu fylgjandi málefninu eða ekki, svo getum við rölt í kjörklefana í september með svör þeirra í farteskinu.
Hamingjan er og verður hjá okkur í framtíðinni.
Alfreð Alfreðsson
Höfundur: Alfreð Alfreðsson
Fæddur á Djúpavogi 17. mars 1958. Uppalinn í Vestmannaeyjum. Fjögurra barna faðir.
Alfreð hefur að mestu starfað við ferðaþjónustu síðustu 15 árin.
Nostalgía
6.Apríl'22 | 21:30Lýðræði eða hvað
23.Nóvember'21 | 21:18Hvaða flokkar standa undir nafni?
22.September'21 | 17:37Enn og aftur um gangnagerð
23.Ágúst'21 | 07:01Stórskipahafnir
13.Apríl'21 | 17:06Breiðafjarðarferjan Herjólfur
13.Mars'21 | 18:30Að pissa í skóna sína
2.Febrúar'21 | 15:30Hvenær verður sagan saga?
26.Janúar'21 | 12:00Til hamingju með daginn Færeyingar
19.Desember'20 | 14:03Eigum við gott skilið?
23.Október'20 | 13:54
Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.
Má bjóða þér að auglýsa hér?
23.Júní'22Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.