Skólastarf eftir páska
31.Mars'21 | 16:17Staðnám getur hafist að nýju á öllum skólastigum eftir páskafrí með ákveðnum takmörkunum, í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis.
Meðfylgjandi reglugerð heilbrigðisráðherra um takmörkun á skólastarfi var unnin í samráði við mennta- og menningarmálaráðuneytið og tekur í meginatriðum mið af appelsínugulum lit í litakóða viðvörunarkerfis fyrir skólastarf sem kynnt var að loknu umfangsmiklu samráði við skólasamfélagið fyrr í vetur, nema hvað íþróttir barna á leik- og grunnskólaaldri utan skóla eru óheimilar, segir í tilkynningu sem birt er á vef Stjórnarráðsins. Gildistími reglugerðarinnar er frá 1. apríl til og með 15. apríl.
„Við getum öll verið sammála um mikilvægi þess að gera nemendum á öllum skólastigum kleift að ljúka skólastarfinu á sem bestan hátt miðað við aðstæður“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra: „Skólasamfélagið hefur sýnt ómældan sveigjanleika og þrautseigju í þessum aðstæðum og fyrir það erum við þakklát og stolt. Þessar ráðstafanir nú eru kunnuglegar mörgum frá því fyrr í vetur en vonandi þurfum við ekki að búa við þær lengi. Við erum bjartsýn þó staðan sé flókin og munum klára þetta saman.“
Leikskólar
- Engin fjölda- eða nálægðartakmörkun gildir um börn á leikskólaaldri.
- Hámarksfjöldi fullorðinna er 20 manns í rými, en starfsmenn mega fara milli rýma.
- Starfsfólk skal virða 2 metra fjarlægðarreglu sín á milli en nota grímu ella.
- Viðburðir eru heimilir í skólastarfinu með þátttöku nemenda og starfsfólks en engum utanaðkomandi.
- Foreldrar og aðstandendur skulu ekki koma inn í skólabyggingar nema brýna nauðsyn beri til og skulu þá nota andlitsgrímu.
Grunnskólar
- Nemendur eru undanþegnir nálægðartakmörkun og grímuskyldu.
- Hámarksfjöldi starfsmanna er 20 manns í rými og þeir mega fara milli rýma.
- Starfsfólk skal virða 2 metra fjarlægðarreglu sín á milli og gagnvart nemendum en nota grímu ella.
- Viðburðir eru heimilir í skólastarfinu með þátttöku nemenda og starfsfólks en engum utanaðkomandi.
- Hámarksfjöldi nemenda í rými er 50 og blöndun milli hópa innan sama skóla er heimil.
Tónlistarskólar
- Halda skal 2 metra nálægðartakmörkun milli starfsfólks og nemenda. Annars skal nota grímur sé þess kostur.
- Hámarksfjöldi nemenda í rými er 50 börn á grunnskólaaldri.
- Viðburðir eru heimilir fyrir börn á leik- og grunnskólaaldri með sömu skilyrðum og gildir um skólastarf þeirra.
- Einstaklingar fæddir 2004 eða fyrr mega vera að hámarki 20 saman í rými og blöndun er heimil.
- Um viðburði fyrir einstaklinga fædda 2004 fer eftir ákvæði um sviðslistir í reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.
Framhaldsskólar
- Hámarksfjöldi nemenda og starfsmanna í rými er 30.
- Halda skal 2 metra nálægðartakmörkun milli nemenda og starfsfólks en nota grímu ella.
- Blöndun nemenda milli hópa er heimil og starfsfólk má fara milli rýma.
- Um viðburði tengda starfi eða félagslífi í framhaldsskóla fer eftir ákvæði um sviðslistir í reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.
Háskólar
- Hámarksfjöldi í kennslustofu og lesrýmum er 50.
- Halda skal 2 metra nálægðartakmörkunum milli allra en nota grímu ella.
- Blöndun nemenda ekki heimil.
- Starfsmenn mega fara milli rýma.
- Engir viðburðir eru heimilir í skólabyggingum.
Áréttað er að íþróttir barna á leik- og grunnskólaaldri utan skóla eru óheimilar samkvæmt gildandi reglugerð heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum.
Tags
COVID-19
Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.
Má bjóða þér að auglýsa hér?
23.Júní'22Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.