Leikskólarnir opna klukkan 10 á morgun, föstudag
25.Mars'21 | 10:22Leikskólarnir opna kl. 10.00, föstudaginn 26. mars vegna hertra sóttvarnarreglna sem tóku gildi á miðnætti þann 25. mars.
Starfsfólk leikskólanna fær þá svigrúm til að ljúka við að undirbúa leikskólastarfið í samræmi við nýju reglurnar, segir í frétt á vef Vestmannaeyjabæjar.
Leikskólarnir munu starfa eftir bestu getu með þeim takmörkunum sem hljótast af reglugerðinni en skv. henni mega 10 fullorðnir einstaklingar vera samankomnir í hverju rými.
Foreldrar eru beðnir um að nota grímu og gæta að 2 metra reglunni í fataherbergjum leikskólanna og staldra þar við eins stutt og kostur er.
Tags
COVID-19
Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.
Má bjóða þér að auglýsa hér?
15.Janúar'18Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...