Hlaðvarpið Vestmannaeyjar – Mannlíf og saga
4.Mars'21 | 18:12Í fyrsta þætti er rætt við Helgu Jónsdóttur um líf og störf. Helga og Arnór eiginmaður hennar eru mjög virk í menningarlífi Vestmannaeyja og eru alltaf með einhver verkefni í vinnslu.
Við fáum að heyra um æsku Helgu og hvernig lífið hjá henni hefur verið og hvað þau hjónin hafa fyrir stafni í dag. Síðan fáum við að heyra stutt viðtal við Jón Jónsson í Brautarholti sem fæddur var 1869 og lést 1964. Upptakan var gerð á árunum 1953/1954 af þremenningunum í Vestmannaeyjafélaginu Heimaklettur. Þar fáum við skemmtilega innsýn í hvernig lífið var í Eyjum hér á árum fyrr og forvitnilegt að heyra hversu mikið hefur breyst.
Næsti þáttur kemur í loftið næsta fimmtudag kl 18:00 á Eyjar.net.
Mannlíf og saga er hlaðvarp/podcast. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og verður hlaðvarpið aðgengilegt á Eyjar.net ásamt helstu veitum svo sem Spotify og Youtube. Einnig er hlaðvarpið á samfélagsmiðlunum Facebook, Instagram og Twitter.
Það eru þau Alma Eðvaldsdóttir, Hinrik Ingi Ásgrímsson og Snorri Rúnarsson sem standa á bakvið hlaðvarpið og er það byggt uppá viðtali við fólk sem tengist Eyjum á einn eða annan hátt.
Rætt er við fólk um líf þeirra og störf. Eftir viðtalið er síðan smá sögubrot úr Eyjum sem starfsfólk Bókasafns Vestmannaeyja er búið að taka saman.
Hlaðvarpið - Jórunn Lilja Jónasdóttir
15.Apríl'21 | 12:25Hlaðvarpið - Einar Björn Árnason
8.Apríl'21 | 12:40Hlaðvarpið - Unnur Guðgeirsdóttir
1.Apríl'21 | 13:23Hlaðvarpið - Aníta Óðinsdóttir
25.Mars'21 | 14:14Hlaðvarpið - Björgvin Sigurjónsson
18.Mars'21 | 12:30Hlaðvarpið - Haraldur Ari Karlsson
11.Mars'21 | 12:37
Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Nýtt hlaðvarp/podcast fer í loftið á fimmtudaginn 4. mars nk. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og verður hlaðvarpið aðgengilegt á Eyjar.net ásamt helstu veitum svo sem Spotify og Youtube. Fylgstu með...

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).