Styðja við starf æskulýðsfélaga vegna COVID-19
12.Febrúar'21 | 10:39Mennta- og menningarmálaráðherra hefur úthlutað 50 milljónum kr. til æskulýðsfélaga sem sem standa fyrir skipulögðu starfi fyrir börn og ungmenni.
Styrkir eru veittir vegna tekjutaps þar sem hætt hefur verið við viðburði, mót eða félög hafa þurft að skerða starfsemi vegna áhrifa COVID-19. Taflfélag Vestmannaeyja, er eitt þeirra félaga sem hlýtur styrk úr úthlutuninni. Styrkurinn til taflélagsins hljóðar uppá 200.000,-
„Æskulýðsstarf hefur ótvírætt forvarna- og menntunargildi og það er markmið okkar að tryggja jöfn tækifæri til þátttöku að slíku starfi. Þar starfa börn og ungmenni í frístundum sínum að hugsjónum, markmiðum og áhugamálum sem þau sjálf meta að verðleikum. Það er mikilvægt veganesti fyrir þau og samfélagið allt,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.
Styrkirnir skiptast svo:
Sumarbúðir KFUK Vindáshlíð | 1.500.000 |
Núll prósent hreyfingin | 200.000 |
Taflfélag Vestmannaeyja | 200.000 |
AFS á Íslandi | 7.000.000 |
KFUM og KFUM | 2.500.000 |
Skógarmenn KFUM | 3.000.000 |
Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni | 3.000.000 |
Bandalag íslenskra skáta | 5.000.000 |
KFUM og KFUK Akureyri | 350.000 |
Taflfélag Reykjavíkur | 1.520.000 |
Samfés | 4.000.000 |
Ungmennafélag Íslands /ungmennabúðirnar á Laugum | 5.000.000 |
Landssamband ungmennafélaga | 4.700.000 |
JCI Íslands | 250.000 |
Víkingaklúbburinn/skákfélag | 100.000 |
Stúdentaráð Háskóla Íslands | 300.000 |
Veraldarvinir | 2.500.000 |
Ungir umhverfissinnar | 300.000 |
Skátafélagið Skjöldungar | 600.000 |
Landssamtökin Þroskahjálp | 700.000 |
Ölver sumarbúðir | 1.500.000 |
Samband íslenskra framhaldsskólanema, SÍF | 4.000.000 |
Samtök ungra bænda | 200.000 |
Alþjóðleg ungmennaskipti (AUS) | 1.000.000 |
Skátafélagið Kópar | 500.000 |
JCI Reykjavík | 80.000 |
Tags
COVID-19
Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.
Má bjóða þér að auglýsa hér?
15.Janúar'18Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...