Gengið til samninga við Líkamsræktarstöðina um leigu á líkamsræktarsal
22.Janúar'21 | 11:18Vestmannaeyjabær óskaði á síðasta ári eftir tilboðum í leigu á húsnæðisaðstöðu líkamsræktarsals í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja.
Á fundi fjölskyldu- og tómstundaráðs í gær var kynnt niðurstaða verðtilboða í umrædda leigu. Fram kemur í afgreiðslu ráðsins að framkvæmdastjóri sviðs hafi farið yfir verðtilboðin í leigu á líkamsræktarsal Íþróttamiðstöðvar.
Alls bárust þrjú tilboð í leiguna. GYM heilsa, bræðurnir Gunnlaugur Örn/Jón Þór og Líkamsræktarstöðinni ehf. sendu inn tilboð. Tilboðin voru metin út frá þremur þáttum, þ.e. verðtilboði í leigu (50% vægi), verð árskorta (40% vægi) og tilboð í umsýslukostnað vegna sölu árskorta (10% vægi).
Líkamsræktarstöðin ehf. reyndist með hæsta vægi umræddra þátta, og samþykkti ráðið að gengið verði til samninga við Líkamsræktarstöðina ehf. um leigu á umræddum sal til næstu þriggja ára frá 1. júní nk.
Líkamsræktarstöðin ehf. hefur verið með salinn í Íþróttamiðstöðinni á leigu undanfarin ár. En fyrirtækið rekur líkamsræktarstöðina Hressó.

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-
Vilt þú ná til Eyjamanna?
17.Ágúst'19Þá er Eyjar.net rétti staðurinn til þess. Sendu okkur línu á auglysingar@eyjar.net - og við aðstoðum þig að finna góða lausn fyrir þig og þitt fyrirtæki.

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).