Fréttir af loðnu á stóru svæði eystra
18.Janúar'21 | 07:38Þrjú skip voru send frá Austfjörðum síðdegis í gær á Seyðisfjarðardýpi til að leita loðnu eftir að þær fréttir bárust frá togurum að þar væri talsvert af loðnu á ferðinni.
Fram kemur á fréttavef Morgunblaðsins, mbl.is að Hafrannsóknastofnun hafi beðið áhöfn Víkings, sem var á leið til löndunar á Vopnafirði, að fara yfir svæðið og staðfesta fregnirnar. Niðurstaðan var sú að töluvert af loðnu væri að finna í kantinum á um 50 mílna kafla frá Hvalbakshalla og norður.
Í ljósi þeirra upplýsinga tók Hafrannsóknastofnun þá ákvörðun að ástæða væri til að ráðast í leitina. Þetta segir Sigurður Guðjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, í Morgunblaðinu í dag. Hann tekur þó fram að ekki sé hægt að fagna fundinum enn sem komið er.
„Það er allt of snemmt að segja til. Við vitum meira eftir 2-3 daga en það er alla vega eitthvert líf í þessu.”

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.
Vilt þú ná til Eyjamanna?
17.Ágúst'19Þá er Eyjar.net rétti staðurinn til þess. Sendu okkur línu á auglysingar@eyjar.net - og við aðstoðum þig að finna góða lausn fyrir þig og þitt fyrirtæki.

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).