Mikið álag á hitaveitukerfið vegna kulda
3.Desember'20 | 14:05Mikið kuldakast gengur nú yfir landið og hafa verið fluttar fréttir af því í landsmiðlunum að hugsanlega þurfi að grípa til skammtana á heitu vatni hjá Veitum á höfuðborgarsvæðinu.
Ívar Atlason, svæðisstjóri vatnssviðs HS-veitna í Vestmannaeyjum segir í samtali við Eyjar.net að hitaveitan sé alveg að ráða við þetta kuldakast eins og staðan er núna, þrátt fyrir mjög mikið álag.
„Það er mikið álag á hitaveituna þessa stundina, með því mesta sem við höfum séð. Okkur gengur ágætlega að halda uppi þrýstingi á öllum stöðum í bænum. Við þurfum ekki að grípa til takmarkana. Að sjálfsögðu viljum við benda fólki á að koma í veg fyrir orkusóun, liður í því er að hafa alla glugga lokaða o.s.frv.” segir hann.
Þá biður Ívar húseigendur að hafa í huga að ef ofnakerfið/gólfhitakerfið er í lagi og rétt stillt, þá er hlýtt í húsum, ekki orkusóun í gangi og orkukostnaður í lágmarki.
Tags
HS-veitur
Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.
Vilt þú ná til Eyjamanna?
17.Ágúst'19Þá er Eyjar.net rétti staðurinn til þess. Sendu okkur línu á auglysingar@eyjar.net - og við aðstoðum þig að finna góða lausn fyrir þig og þitt fyrirtæki.

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).