Vestmannaeyjabær:
Setja á laggirnar viðspyrnusjóð fyrir fyrirtæki
2.Desember'20 | 08:00Framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs kynnti á síðasta fundi bæjarráðs drög að fyrirkomulagi og reglum um sérstakan viðspyrnusjóð fyrir fyrirtæki vegna Covid-19.
Samkvæmt drögunum er gert ráð fyrir að settur verði á laggirnar viðspyrnusjóður fyrir fyrirtæki, með áherslu á fyrirtæki í ferðaþjónustu, með heilsársstarfsemi, sem nýtur framlaga frá Vestmannaeyjabæ um allt að 5 m.kr. á árinu 2020.
Sjóðurinn er stofnaður til að bregðast við þeim óvæntu og sérstöku aðstæðum sem skapast hafa vegna heimsfaraldurs Covid-19 veirunnar. Gríðarlegt tekjufall hefur orðið hjá mörgum fyrirtækjum, sérstaklega í ferðaþjónustu og við þeim aðstæðum er verið að bregðast með afgerandi hætti.
Gert er ráð fyrir að sjóðurinn verði fjármagnaður með þegar ákveðnum fjárheimildum á fjárhagsáætlun 2020 og því þarf ekki að koma til nýtt fjármagn.
Í niðurstöðu ráðsins segir að bæjarráð samþykki að settur verði á laggirnar viðspyrnusjóður á þeim grunni sem kynntur hefur verið og samþykkir drög að fyrirkomulagi og reglum sjóðsins.
Bæjarráð felur framkvæmdastjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að fylgja málinu eftir og auglýsa sjóðinn á vef Vestmannaeyjabæjar. Úthlutað verður úr sjóðnum fyrir áramót.

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).