Ný siglingaáætlun Herjólfs tekur gildi
30.Nóvember'20 | 20:05Þann 1.desember siglir Herjólfur eftir nýrri siglingaáætlun. Fyrstu þrjár ferðir dagsins haldast óbreyttar og síðari þrjár ferðirnar færast fram um klukkutíma.
Vakin er athygli á því að skrifstofa Herjólfs í Vestmannaeyjum er opin frá 06:30-22:00 daglega á meðan skrifstofan í Landeyjahöfn er opin frá 09:00-21:00.
Afgreiðslan í Landeyjahöfn er því mannlaus í ferðum kl. 08:15 og kl. 22:00. Farþegar eru hvattir til þess að vera búnir að ganga frá kaupum á miðum á heimasíðu Herjólfs eða í gegnum síma 4812800, segir í tilkynningu frá Herjólfi ohf.
Vetraráætlun
Gildir til 31. maí
Vestmannaeyjar brottför: | Landeyjahöfn brottför: |
---|---|
07:00 - Alla daga* | 08:15 - Alla daga |
09:30 - Alla daga | 10:45 - Alla daga* |
12:00 - Alla daga | 13:15 - Alla daga |
16:00 - Alla daga* | 17:15 - Alla daga |
18:30 - Alla daga | 19:45 - Alla daga* |
21:00 - Alla daga | 22:15 - Alla daga |
- Ef Herjólfur siglir til Þorlákshafnar er áætlunin eftirfarandi í vetraráætlun:
Brottför frá Vestmannaeyjum kl 07:00 og 16:00
Brottför frá Landeyjahöfn/Þorlákshöfn kl 10:45 og 19:45
- Einnig tekur í gildi ný verðskrá Herjólfs þann 1. desember. Hér má sjá nýju verðskránna.
Tags
Herjólfur
Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Nýtt hlaðvarp/podcast fer í loftið á fimmtudaginn 4. mars nk. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og verður hlaðvarpið aðgengilegt á Eyjar.net ásamt helstu veitum svo sem Spotify og Youtube. Fylgstu með...

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).