Tilslakanir í leik- og grunnskólastarfi: Minni grímuskylda og óheft útivist
18.Nóvember'20 | 07:45Samkvæmt nýrri reglugerð sem gildi tekur í dag verða nemendur 5.–7. bekk grunnskóla undanþegin grímuskyldu og 2 metra nálægðartakmörkunum, líkt og yngri börn í grunnskóla og leikskólabörn.
Grímuskylda kennara gagnvart börnum á leikskólaaldri og nemendum í 1.-7. bekk er einnig afnumin. Þá er heimilt að nemendahópar blandist á útisvæðum leik- og grunnskóla. Íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf barna í leik- og grunnskólum verður einnig heimilað. Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið þetta í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis og í samráði við mennta- og menningarmálaráðuneytið. Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins.
Helstu reglur í leikskólum:
- Fullorðnir þurfa að gæta að 2 metra nálægðartakmörkum. Sé ekki unnt að tryggja 2 metra nálægðartakmörkun milli starfsfólks skal notast við andlitsgrímur.
- Starfsfólki ber ekki skylda til að nota andlitsgrímur í samskiptum við leikskólabörn.
- Ekki skulu vera fleiri en 10 fullorðnir einstaklingar í hverju rými, þó er starfsmönnum heimilt að fara milli hópa.
- Ekki skulu vera fleiri en 50 leikskólabörn í hverju rými. Nálægðartakmörkun tekur ekki til barna á leikskólaaldri.
- Ákvæði um blöndun hópa, grímuskyldu og nálægðartakmörkun gilda ekki á útisvæðum leikskóla.
- Skipulagt íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf barna á leikskólaaldri er heimilt, þó að hámarki 50 börn saman. Ekki þarf að halda sömu hópaskiptingu og í leikskólastarfi.
Helstu reglur í grunnskólum:
- Starfsfólk og nemendur í 8.–10. bekk þurfa að gæta að 2 metra nálægðartakmörkum. Sé ekki unnt að tryggja lágmarksfjarlægð skal það notast við andlitsgrímur.
- Starfsfólki ber ekki skylda til að nota andlitsgrímur í samskiptum við nemendur í 1.–7. bekk.
- Ekki skulu vera fleiri en 10 starfsmenn í hverju rými, þó er starfsmönnum heimilt að fara milli hópa.
- Nemendur í 1.–7. bekk eru undanþegnir 2 metra nálægðartakmörkun sem og grímuskyldu.
- Ekki skulu vera fleiri en 50 nemendur í 1.–4. bekk í hverju rými.
- Ekki skulu vera fleiri en 25 nemendur í 5.–10. bekk í hverju rými.
- Í sameiginlegum rýmum skóla, svo sem við innganga, í anddyri, á salerni og göngum, er heimilt að víkja frá fjöldatakmörkun og reglu um blöndun hópa að því gefnu að nemendur í 8.–10. bekk og starfsfólk notist við andlitsgrímu.
- Á útisvæðum grunnskóla gilda ekki ákvæði um blöndun hópa, grímuskyldu eða nálægðartakmörkun milli nemenda.
- Halda skal sömu hópaskiptingu nemenda í grunnskólastarfi, í félagsmiðstöðvum og á frístundaheimilum þannig að ekki verði blöndun milli nemendahópa.
- Skipulagt íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf barna á grunnskólaaldri er heimilt, þ.e. að hámarki 50 börn í 1.–4. bekk og að hámarki 25 í 5.–10. bekk. Ekki þarf að halda sömu hópaskiptingu og er í grunnskólastarfi.
Tags
COVID-19
Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...